JARÐ2IÖ05 - Jarðfræði - Innræn öfl

Viðfangsefni: Eldgos, jarðskjálftar, jarðsaga Íslands, storkuberg og steindir

Lýsing: Áfanginn er framhaldsáfangi fyrir raunvísindabraut. Flekakenningin rifjuð upp. Fjallað er um innræn öfl, eldgos og jarðskjálfta. Uppruni og jarðsaga Íslands tekin fyrir. Farið í helstu bergmyndanir, flokkun storkubergs og greiningu steinda. Áhersla er lögð á innræn öfl og mótun landslags af þeirra völdum.

Forkröfur: JARÐ2ÚÖ05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • opnun Norður-Atlantshafs og myndun Íslands
  • rekbeltaflutningum á Íslandi og ástæðum þeirra
  • tengsl flekakenningarinnar við eldvirkni og jarðskjálfta
  • eldvirkni á jörðinni og Íslandi
  • helstu gerðum eldfjalla og eldgosa
  • þeim þáttum sem hafa áhrif á hegðun eldgosa
  • helstu storkubergsmyndunum
  • mismunandi gerðum kviku og gosefna
  • flokkun og greiningu steinda og storkubergs
  • helstu steindum í íslensku bergi, bæði frumsteindum og holufyllingum
  • mismunandi gerðum jarðskjálftabylgja og mælikvarða á stærð skjálfta
  • helstu þáttum í jarðsögu Íslands
  • jarðsögutöflu jarðarinnar í grófum dráttum

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina berg og steindir
  • fjalla um myndun bergs og mismunandi gerða kviku.
  • greina ummerki innrænna afla við landmótun.
  • staðsetja náttúrufyrirbæri á Íslandi og tengja náttúrufarslega þætti við staðsetninguna.
  • lesa úr jarðfræðikortum.
  • staðsetja flekamörk, gosbelti, þverbrotabelti og möttulstrók landsins
  • finna skjálftamiðju jarðskjálfta út frá skjálftalínuritum
  • raða jarðlögum í aldursröð eftir afstæðum aldri

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa jarðfræðitexta og skilið fréttir af jarðfræðilegum fyrirbrigðum
  • tengja undirstöðuþætti jarðfræðinnar við umhverfi sitt og fjallað á rökrænan hátt um mikilvægi og notagildi í daglegu lífi
  • greina bergtegundir í náttúrunni
  • nýta jarðfræðikort og önnur gögn til að segja til um myndun bergs og lands
  • skilja mikilvægi þess að sýna umhverfi sínu og náttúru virðingu
  • nýta gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð við lausn verkefna