JARÐ2ÚÖ05 - Jarðfræði - Útræn öfl

Viðfangsefni: Kort og kortagerð, vatn á jörðinni og sérstaklega á Íslandi, útræn öfl

Lýsing: Áfanginn er grunnáfangi fyrir raunvísindabraut. Áhersla er lögð á útræn öfl og mótun landslags á Íslandi af þeirra völdum. Fjallað er um kortagerð, innri gerð jarðar, flekakenninguna og jarðhita. Útrænum öflum gerð góð skil. Ýmsum þáttum í staðfræði Íslands gerð skil.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu atriðum korta og kortagerðar
  • lengdar- og breiddarbaugum og áttum
  • innri gerð jarðar, landreki, flekamörkum, möttulstrókum og sérstöðu Íslands
  • grunnvatni, neysluvatni og heitu vatni
  • hvar jarðhita er að finna á Íslandi og helstu einkennum hans
  • þeim útrænu öflum sem eru að verki á Íslandi og ummerkjum þeirra
  • þeim öflum sem hafa mótað og myndað nærumhverfi skólans

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa kort, bæði staðfræði- og þemakort
  • finna raunverulegar vegalengdir út frá mælikvarða korta
  • teikna þversnið út frá hæðarlínum
  • finna fullnaðarstaðsetningu fyrirbæra
  • greina ummerki útrænna afla við landmótun
  • staðsetja helstu náttúrufyrirbæri á Íslandi og tengja náttúrufarslega þætti við staðsetninguna

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja undirstöðuþætti jarðfræðinnar við umhverfi sitt og fjallað á rökrænan hátt um mikilvægi og notagildi í daglegu lífi
  • lesa jarðfræðitexta og skilja fréttir af jarðfræðilegum fyrirbrigðum
  • lesa á kort og nýta sér þau
  • skilja mikilvægi þess að sýna umhverfi sínu og náttúru virðingu