JARÐ3VH05 - Jarðfræði - Veður og haffræði
Viðfangsefni: Veður- og haffræði
Lýsing: Áfanginn fjallar um grundvallarþætti í samsetningu og eðlisfræði lofthjúpsins. Áhrif sólargeislunar á lofthjúpinn og misjafna hitadreifingu jarðar. Veðrakerfin og þrýstingsbreytingar í lofthjúpi jarðar. Tengsl veðurfars og gróðurbelta og áhrif verðurfarsbreytinga á lífríki jarðar. Sérstaklega verður fjallað um veðurfar og veðráttu á Íslandi. Þá verður í áfanganum tekin fyrir fræði hafsins þar sem hafið er skoðað m.t.t. seltu, strauma, hafsbotns, sjávarhita, hafíss og helstu lífsskilyrða sjávar.
Forkröfur: JARÐ2ÚÖ05 eða LAND2LA05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lofthjúpi jarðar, efnasamsetningu og lagskiptingu hans
- helstu ferlum sem valda veðrum
- mismunandi skýjagerðum og flokkun þeirra
- vindakerfi jarðar
- loftslags- og gróðurbeltum
- loftslagsbreytingum og orsökum þeirra
- helstu einkennum hafstrauma og sjávargerða við Ísland
- helstu breytiþáttum sjávar og sjávarstraumum
- tengslum veðurfars og gróðurbelta og tengslum veðurfars og landslags
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera einfalda veðurspá út frá þrýstikorti
- lesa veðurkort
- greina ský og nýta skýjamyndanir til að segja til um veður
- segja til um áhrif seltu og hita á hafstrauma
- skoða hafið út frá mikilvægi þess á jörðinni og þeim áhrifum sem það hefur við strendur landa
- fjalla um veðurlag út frá stöðu veðrakerfa í nágrenni landsins
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fylgjast með og skilja veðurspá
- gera einfaldar veðurspár byggðar á eigin athugunum, veðurkortum og veðurlýsingum
- meta veðurfar og veðurfarsbreytingar og áhrif þeirra á lífsskilyrði á Íslandi og í heiminum
- sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð í upplýsingaöflun, mati, úrvinnslu og framsetningu veðurgagna
- meta þau áhrif sem hafið hefur á daglegt líf okkar t.d. hvað varðar veðurfar, sjávarföll og sjávarstrauma