Viðfangsefni: Nótnalestur og framkoma
Lýsing: Í áfanganum er haldið áfram að þjálfa undirstöðuatriði kórsöngs. Fjallað er um raddbeitingu og raddvernd, mismunandi gerðir samsöngs, blæbrigði inntónunar og flóknari atriði nótnalesturs. Nemendur ná betri tökum á einföldum atriðum nótnalesturs og öðlast meira öryggi í framkomu. Kórfélagar kynnast áfram fjölbreyttri tónlist frá ýmsum löndum og úr mismunandi tónlistarstefnum. Kórfélagar taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, æfa tvisvar til þrisvar í viku í tvo tíma í senn. Æfingabúðir eru haldnar eina helgi á hverri önn. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri, heldur tónleika, syngur við brautskráningarathafnir í skólanum og heldur reglulega í söngferðalög, bæði innlands og utan. Allir kórfélagar taka þátt í undirbúningi ferða, s.s. með fjáröflun o.fl.
Forkröfur: KÓRS1RS05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðuatriðum nótnalestrar, s.s. tónhæð, nótnaheitum í tveimur lyklum (G og F) og mismunandi uppsetningu kórnótna, t.d. á tvo eða fjóra nótnastrengi í systemi
- einföldum gerðum tónstyrksmerkinga, s.s. pp, p, mp, mf, f og ff og breytinga á tónstyrk (crescendo og diminuendo og v-laga (graífískri) framsetningu
- nokkurra valinna tónlýsiorða á ítölsku
- tónmyndun og raddvernd söngvara og þekki til grunnatriða í söngtækni
- helstu rytmasamsetningum og taktlengdum
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- koma fram með kór og öðlast meira öryggi í framkomu
- fylgja einföldum og meira krefjandi laglínum af nótum, bæði hvað varðar tónhæð og rytma
- syngja sig saman í hljóm með nokkuð öruggri inntónun
- greina sína rödd út frá hljómi, bæði ómþýðum og einföldum ómstríðari
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- njóta fegurðar samsöngs
- meta gildi tónlistar sem listgreinar
- þroska með sér smekk fyrir kórtónlist eftir mismunandi tónlistarstefnum