KÓRS1RS05 - Kór - Raddbeiting og samsöngur

Viðfangsefni: Raddbeiting og samsöngur, 1.áfangi í kórsöng

Lýsing: Í þessum upphafsáfanga í kórsöng eru undirstöðuatriði kórsöngs kynnt. Fjallað er um grundvallaratriði raddbeitingar, mikilvægi tónblæs í samsöng, undirstöðuatriði inntónunar og grunnatriði nótnalesturs. Kórfélagar kynnast fjölbreyttri tónlist frá ýmsum löndum og úr mismunandi tónlistarstefnum. Kórfélagar taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, æfa tvisvar til þrisvar í viku í tvo tíma í senn. Æfingabúðir eru haldnar eina helgi á hverri önn. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri, heldur tónleika, syngur við brautskráningarathafnir í skólanum og heldur reglulega í söngferðalög, bæði innlands og utan. Allir kórfélagar taka þátt í undirbúningi ferða, s.s. með fjáröflun ofl.

Forkröfur: Engar
 
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • undirstöðuatriðum nótnalestrar, s.s. tónhæð, nótnaheitum og einfaldri uppsetningu kórnótna
  • algengustu gerða tónstyrksmerkinga og breytinga á tónstyrk
  • tónmyndun raddarinnar og undirstöðuatriðum raddbeitingar
  • helstu einföldu rytmasamsetningum og taktlengdum
 
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • koma fram með kór, sem felst í einföldum atriðum er varða stöðu og framkomu
  • fylgja einföldum laglínum af nótum, bæði hvað varðar tónhæð og rytma
  • syngja sig saman í hljóm með nokkuð öruggri inntónun
  • greina sína rödd út frá einföldum, ómþýðum hljómi
 
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • njóta fegurðar samsöngs
  • meta gildi tónlistar sem listgreinar
  • hefja að þroska með sér smekk fyrir kórtónlist