LAND2LA05 - Landafræði - Land- og auðlindanýting

Viðfangsefni: Kortalestur, landnýting, auðlindanýting, fólksfjölgun, búsetumynstur, vatnsauðlindir

Lýsing: Í þessum áfanga er fjallað um landafræði sem fræðigrein, notagildi hennar og tengsl við aðrar fræðigreinar. Lögð er áhersla á kortalestur, fjallað er um landnýtingu á Íslandi og á heimsvísu, breytingar á notkun lands og afleiðingar þess. Skilgreint er hvað felst í skipulagi lands og á hvaða stoðum slíkt skipulag hvílir. Gerð er grein fyrir undirstöðum efnahagslífs, nýtingu auðlinda og tengslum þessara þátta. Kynnt eru grunnhugtök í lýðfræði, vandamál er tengjast fólksfjölgun og breytingum á búsetumynstri og orsakir og afleiðingar fólksflutninga. Nemendur kynna sér vatn sem auðlind, áhrif vatnsskorts og nýtingamöguleika vatns. Megináhersla er á að nemendur vinni nokkur sérhæfð en fjölbreytt verkefni sem krefjist upplýsingaöflunar með margskonar miðlum og úr fjölbreyttum heimildum.

Forkröfur: engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • merkingu hugtaka eins og landnýting, skipulag, auðlind og sjálfbær þróun
  • samspili nýtingar mannsins á auðlindum og þróun umhverfis
  • helstu gerðum og hlutverki skipulags, svo sem aðal-, svæða- og deiliskipulags
  • hvernig nýtingamöguleikar vatns eru í heiminum
  • mikilvægum lýðfræðilegum hugtökum, t.d. aldursskiptingu, fæðingar- og dánartíðni, barnadauða, meðalævi, lífslíkur, offjölgun og búsetumynstur
  • kenningum um mannfjöldabreytingu, þróun mannfjöldapýramída
  • tímamismun milli landa og átti sig á mismunandi árstíðum í heiminum
  • hvernig land er nýtt á Íslandi og hvernig þróun atvinnulífs hefur haft áhrif á búsetumynstur
  • sögu þéttbýlismyndunar og þróunar til dagsins í dag, bæði erlendis sem og hérlendis
  • þekkja þá þætti samskipta og skipulags sem nauðsynleg eru í menningarsamfélagi nútímans
  • hvernig land er nýtt á Íslandi og hvernig þróun atvinnulífs hefur haft áhrif á búsetumynstur á Íslandi

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota algengustu hugtök landfræðinnar
  • reikna út tímamismun milli landa og staðsetningu í bauganeti jarðar
  • skilja þarfir mismunandi menningarheima og lífsgæði
  • lesa almennar upplýsingar úr landakortum hvað varðar vegalengdir, hæðarlínur og staðsetningu ýmissa þátta svo sem stærð þorpa og bæja, vegakerfi og samgöngur.
  • nýta algengar leitarvélar til að ná fram landfræðilegum upplýsingum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • yfirfæra fræðin á umhverfi sitt
  • átta sig á staðsetningu landa, heimsálfa og landamæra í hagnýtum skilningi
  • skilja hversu mikilvægt er að takmarka eða vinna úr auðlindum heimsins
  • vinna með og skilja mikilvægi skipulags til sjávar og sveita
  • skilja þarfir Íslendinga til að afla sér lífsviðurværis og að viðhalda auðlindum okkar lands til að búseta á Íslandi haldi sínum gæðum
  • skilja þarfir mismunandi menningarheima og lífsgæði