LEIÐ2ÁF05 - Leiðtogaþjálfun - Ábyrg forysta

Viðfangsefni: Starf innan NFF

Lýsing: Haldið er áfram að vinna með þá þætti sem skipta máli varðandi jafningjastjórnun og samábyrgð, uppbyggingu félagslífs, stjórnun fjármála, verkefnastjórnun, jafnrétti, kynhlutverk, lýðræðisleg og sjálfstæð vinnubrögð, HEF og aðra áhersluþætti í skólastarfinu. Við lausn allra verkefna áfangans er krafist gagnrýninnar hugsunar. Nemendur vinna verkefni þar sem styrkleikar hvers og eins njóta sín og verður þannig hlutverk nemenda mismunandi.

Forkröfur: LEIÐ1JS05

Þekkingarviðmið; Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í daglegu lífi
  • þeim þáttum sem tengist því að vera ábyrgur þátttakandi í atvinnulífinu
  • vinnulagi sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
  • fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í daglegu lífi
  • hvað fellst í því að vera ábyrgur þátttakandi í atvinnulífinu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig á skýran og skapandi hátt
  • skipuleggja einfalt vinnuferli og beita viðeigandi tækni í því sambandi
  • vinna sjálfstætt að verkefnum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjáð skoðanir sínar og skýra verklag tengt skilgreindu starfsumhverfi á ábyrgan, sjálfstæðan og skýran hátt
  • vera ábyrgður gagnvart starfi og starfsumhverfi
  • gera sér grein fyrir nýjum tækifærum í umhverfinu
  • vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi og innan samfélags sérþekkingar
  • tengja þekkingu sína og leikni við starfsumhverfi og daglegt líf