LEIK1LH05 - Leiklist - Leikhús, uppsetning sýningar

Viðfangsefni: Leiklist, uppsetning á leiksýningu

Lýsing: Farið verður áfram yfir helstu aðferðir leiklistar. Kennsla í spuna og skapandi hlustun í leik. Vinna með díalóga og mónalóga. Handritsgerð, búningagerð, sviðsmynd og almenn uppsetning á leiksýningu 

Forkröfur: LEIK1LE05


Þekkingarviðmið
: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • aðferðafræði og vinnu leikara
  • spuna og skapandi hlustun í leik
  • leikhúsfræðum og uppsetningu leikrita
  • vinnu með mónalóga og díalóga
  • undirbúningi á leiksýningu

 

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig á skýran og ábyrgan hátt
  • lesa leikverk
  • taka þátt í díalógum
  • taka þátt í undirbúningsvinnu fyrir uppsetningu á leikverki, s.s. handrits- og búningagerð
  • vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn

 

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beitt helstu aðferðum leiklistarinnar
  • lesa og skilja uppbyggingu leikverka
  • tjá hugsanir sínar og tilfinningar í rökréttu samhengi
  • geta hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
  • geta átt jákvæð og uppbyggilega samskipti við annað fólk
  • hugað að náms og starfsferli sínum er snýr að leiklist