LÍFF2ÍS05 - Líffræði - Vistfræði Íslands

Viðfangsefni: Náttúra Íslands, vistfræði og umhverfismál

Lýsing: Áfanginn er valáfangi fyrir alla nemendur og kjörsviðsáfangi náttúrufræðibraut.
Náttúra Íslands er skoðuð, sérstök áhersla er lögð á sérstöðu lands, fersksvatns og sjávar, fjölbreytileika, stofna lífvera og framvindu í lífkerfum. Farið er í vettvangsferðir t.d. í fjöru og að Ástjörn. Litið er til sjálfbærrar nýtingar stofna og lífrænna auðlinda ásamt því að skoða helstu rök fyrir náttúruvernd. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á umhverfi sínu, áhrifum manna á umhverfið þ.e.a.s. umhverfismál og mikilvægi þeirra í daglegu lífi. Vistfræðilegar rannsóknaraðferðir eru kynntar og fjöldi íslenskra rannsóknastofnanna. Verklegar æfingar eru í hópum og á eigin vegum.

Forkröfur: engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fjölbreytileika lífvera, sérkenni íslenskrar náttúru og nánasta umhverfis
  • lífbeltum jarðar, mismunandi gerðum vistkerfa og framvindu
  • fæðukeðjum, hringrásum, líflandafræði og nýjum tegundum
  • samskiptum lífvera, þolsviði, sess og útbreiðslu
  • alþjóðlegum umhverfismálum
  • þjóðgörðum á Íslandi og helstu rökum fyrir náttúruvernd
  • vistfræðirannsóknum og úrvinnslu gagna

Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa líffræðilegan texta og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans, nota upplýsingatækni við heimildaöflun og vinnu
  • beita vísindalegum aðferðum við framkvæmd verklegra æfinga og við einfaldar vistfræðirannsóknir
  • nýta sér greiningarlykla til að greina lífverur
  • skrifa skýrslur og leysa verkefni um afmörkuð viðfangsefni
  • fara í vettvangsferðir, skoða og njóta náttúru Íslands
  • fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru
  • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að

  • tengja undirstöðuþekkingu í vistfræði við daglegt líf og umhverfi
  • leggja mat á upplýsingar sem tengjast vistfræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu
  • átta sig á þýðingu náttúrunnar sem fæðugjafa og umhverfis
  • mynda sér skoðanir og afstöðu til mála sem snerta vistfræði, bera virðingu fyrir og taka ábyrga afstöðu til hegðunar sinna með tilliti til lifandi náttúru
  • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi í einstaklingsverkefnum og í samvinnu við aðra