LÍFF2LE05 - Líffræði - Lífeðlisfræði, fyrri hluti
Viðfangsefni: Frumur, efni, örverur, erfðir og lífeðlisfræði ákveðinna líffæra (hjarta og æða, lifur, nýru og lungu).
Lýsing: Áhersla er á mannslíkamann og liffærakerfi hringrásar-, öndunar- og þvagkerfið. Heilbrigð starfsemi er lögð til grundvallar en einnig algengustu frávik. Örverurfræði. Rannsóknarstofnanir sem tengjast viðfangsefni eru heimsóttar.
Einnig er áhersla á mikilvægi þekkingar á lífeðlisfræði í daglegu lífi og nemendur búnir undir frekara nám í lífeðlisfræði og skyldum greinum.
Forkröfur: EFNA2AM05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- byggingu og starfsemi mismunandi frumugerða
- gerð og hlutverki frumulíffæra
- flutningi efna um frumuhimnur
- kenningum um tilurð og þróun heilkjörnunga, byggingu DNA og RNA
- lögmálum Mendels og algengum erfðamynstrum
- afritun, umritun og þýðingu erfðaefnisins og stökkbreytingum
- byggingu og starfsemi örvera (veira, baktería og sveppa) með áherslu á sjúkdóma m.a. kynsjúkdóma
- gerð og hlutverki dýra- og plöntuvefja
- hringrásarkerfi
- öndunarkerfi
- þvagkerfi
- vísindalegum aðferðum
Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa líffræðilegan texta og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
- nota upplýsingatækni við heimildaöflun og vinnu
- beita vísindalegum aðferðum til framkvæma verklegar æfingar og nota ljóssmásjá og einföld rannsóknartæki s.s. blóðþrýstimæla
- meðhöndla krufningaráhöld og kryfja innri líffæri
- skrifa skýrslur um niðurstöður verklegra æfinga
- leysa verkefni um afmörkuð viðfangsefni
- tjá kunnáttu sína munnlega, skriflega og fjalla um álitamál.
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi
- lesa fréttagreinar og almenn vísindarit
- leggja gróft mat á lífeðlisfræðilegar upplýsingar á gagnrýninn hátt
- taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. lífeðlisfræðilegra þátta
- taka ákvarðanir varðandi heilbrigðan lífsstíl
- auka skilning sinn á örverum
- tryggja eigið kynheilbrigði
- tengja niðurstöður verklegra æfinga við fræðin og draga ályktanir af þeim
- afla sér frekari þekkingar á sviði lífeðlisfræðinnar
- beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi í einstaklingsverkefnum og í samvinnu við aðra