LÍFF3EF05 - Líffræði - Erfðafræði

Viðfangsefni: Erfðafræði

Lýsing: Gerð er grein fyrir sögu erfðafræðinnar. Fjallað er um Mendels lögmálið, rannsóknir á erfðum og stofnerfðafræði til 1953. Einnig verður farið í byggingu erfðaefnis, raðgreiningu, genastjórnun og erfðatækni.

Forkröfur: LÍFF3LE05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • erfðareglur Mendels, erfðagallar, kyntengdar erfðir
  • erfðafræðin frá 1900 til 1953, genakort, rannsóknir á erfðagöllum, uppgötvun erfðaefnisins
  • erfðaefnið, bygging og starf
  • erfðatækni
  • notkun erfða í atvinnustarfsemi
  • stofnerfðafræði

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leysa þrautir innan erfðafræði
  • lesa vísindatexta í fræðigreinum
  • skilja byggingu flókinna líffræðiferla
  • sjá samhengi í stjórnun fruma út frá erfðamengi þeirra
  • átta sig á erfðagreiningum og þeim möguleikum sem þar liggja, t.d. í flokkunarfræði

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja upp raunhæfar tilraunir innan raunvísinda (skoðun-tilgáta-tilraun-kenning)
  • skilja notkun erfðatækni í iðnaði og öðrum greinum
  • meta hvað er raunhæft til að skila árangri innan erfðatækninnar
  • átta sig siðfræðilegum takmörkunum greinarinnar