LÍFF3VL05 - Líffræði - Verkefnalíffræði

Viðfangsefni: Áfanginn byggir á heimildavinnu og margskonar framsetningu. Nemendur velja sér viðfangsefni. Gagnlegur áfangi fyrir nemendur sem stefna á frekara nám.

Lýsing: Áfanginn er valáfangi fyrir nemendur á raunvísindabraut. Lögð áhersla á að nemendur samþætti þá þekkingu og færni sem þeir hafa tileinkað sér í fyrra námi, með sérstakri áherslu á líffræði. Nemandinn skrifar heimildarritgerð um áhugasvið innan líffræðinnar, les fræðigreinar í tengslum við viðfangsefni og útbýr bæði bækling og kynningu. Áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð.

Forkröfur: 10 einingar í líffræði

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • almennum viðfangsefnum og aðferðum líffræðinnar
  • sérhæfðum sviðum líffræðinnar eftir áhugasviði hvers nemenda
  • þeim vinnuaðferðum sem beitt er í áfanganum

Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa líffræðilegan texta sem tengist viðfangsefni, greina mismunandi texta úr fjölmiðlum og fræðiritum
  • lesa greinar um álitamál sem tengjast vísindasiðfræði
  • gera raunhæfa vinnu-, starfsáætlun
  • nýta sér rannsóknartæki og hugbúnað í tengslum við líffræðinám
  • samningu spurninga og viðtalstækni við rannsakendur og þar með öflun munnlegra heimilda
  • nota upplýsingatækni við heimildaöflun og vinnu
  • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum
  • taka rökstudda afstöðu til siðfræðilegra álitamála
  • beita öguðum vinnubrögðum og taka ábyrgð á eigin námi