LÖGF3SV05 - LÖGF3SV05 - Stjórnskipun og viðskiptalög

Viðfangsefni: Stjórnskipunin, samninga- og kröfuréttur, lausafjár- og fasteignakaup, vinnuréttur

Lýsing: Kynnt eru grundvallaratriði íslenskrar stjórnskipunar og réttarkerfis. Áhersla er lögð á kynningu á lögum og reglum sem tengjast viðskiptalífinu s.s. samninga og kröfurétt, lausafjár- og fasteignakaup, mismunandi rekstrarform, samkeppnismál og vinnurétt. Áfanginn miðar að því að gefa nemendum innsýn í umfang löggjafar á þessu sviði og þekki helstu meginreglur hennar. Stutt umfjöllun um sifja- og erfðarétt.

Forkröfur: ÍSLE2BM05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum lögfræðinnar
  • grundvallaratriðum í réttarfari, fræðilegri uppbyggingu og forsendum lagaréttar
  • réttarheimildum
  • íslenskri stjórnskipan
  • mannréttindarkafla íslensku stjórnarskrárinnar
  • meginreglum íslensks réttarfars og helstu farvegi mála í gegn um dómstóla og aðrar stofnanir réttarkerfisins svo sem greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrotaskipti
  • helstu hugtökum sem lúta að réttindum og skyldum þjóðfélagsþegna
  • almennum reglum sem varða samninga, umboð og aðra löggerninga
  • lögum og réttarreglum um lausafjárkaup og fasteignakaup
  • helstu lögum og réttarreglum er varða kröfur og skuldbindingar
  • helstu lögum og réttarreglum er varða sifja-, erfða og barnarétt
  • helstu réttindum og skyldum aðila á vinnumarkaði
  • helstu lögum um stéttarfélög og vinnudeilur
  • mismunandi rekstarformum í atvinnurekstri hvað snertir ábyrgð eigenda og fleira
  • lögum og reglum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina og setja fram rökstudda lausn við lögfræðilegum álitamálum sem sett eru fram í raunhæfum dæmum
  • flokka kröfuhafa gjaldþrotabús í skuldaröð
  • skipta upp búi við skilnað samkvæmt reglum um hjónaskilnað, helmingaskipti og séreignir
  • gera upp dánarbú samkvæmt íslenskum erfðareglum
  • hagnýta sér netið til öflunar hagfræðilegra upplýsinga

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útskýra mikilvægi lögfræðinnar fyrir einstakling, fyrirtæki og samfélag
  • leysa raunhæf lögfræðileg dæmi
  • lesa og hlusta á umræður um lögfræðileg málefni með skilningi
  • tjá sig í ræðu og riti um lögfræðileg málefni
  • beita upplýsingatækni við öflun upplýsinga og lausn verkefna
Til baka