MYNL1SE05 - Myndlist - Sköpun og teikning

Viðfangsefni: Teikning, litafræði, grafík, listasaga, endurnýting og skapandi ferli

Lýsing: Í áfanganum læra nemendur tæknileg undirstöðuatriði í myndlist, s.s. litafræði, vinna með grunnform, skyggingu, þrívídd, lögmál myndbygginar og jafnvægi flatar. Áhersla er lögð á að örva skapandi hugsun nemanda, auka tæknilega þjálfun og skilning á efnum og aðferðum. Nemendur eru hvattir til þess að nota óhefðbundin efni í myndverk, endurvinnsla.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnaðferðum í myndlist
  • notkun teikniáhalda og virkni þeirra
  • litasvið blýantsins og aðferðum til skygginga
  • eins- og tveggja punkta fjarvídd
  • grunnþáttum formfræði og teikningar
  • blöndun grunnlita í litatóna og hugtök þar að lútandi
  • myndbyggingu
  • formum og uppbyggingu þeirra
  • fjölbreytileika í meðhöndlun efniviðar

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa upplýsingar um listir og menningu
  • vinna með mismunandi leiðir til listsköpunar
  • nýta sér grunnþjálfun í tækni, verklagi, skapandi aðferðum og túlkun
  • vinna frá hugmynd til lokaafurðar

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • byggja upp myndverk
  • nýta reglur og form í eigin listsköpun
  • vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir
  • útfæra myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar
  • vinna með mismunandi leiðir til listsköpunar og hönnunar