MYNL1UT05 - Myndlist - Umhverfi og teikning
Viðfangsefni: Umhverfis- og hlutateikning, módelteikning, grafík, listasaga, endurnýting og skapandi ferli
Lýsing: Í áfanganum læra nemendur tæknileg undirstöðuatriði í myndlist, s.s. módelteikningu, formfræði, fjarvídd og lýsingu. Lögð er áhersla á að þjálfa nemendur í teikningu, formskilningi, rýmisskynjun og skoðun umhverfisins. Áhersla er lögð á að örva skapandi hugsun nemanda, auka tæknilega þjálfun og skilning á efnum og aðferðum. Nemendur skipuleggja nám sitt ásamt því að ígrunda og þróa hugmyndir sínar í ferilbók ásamt því að nýta óhefðbundin efnivið í myndverk.
Forkröfur: MYNL1SE05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- litasvið blýantsins og aðferðum til skygginga
- hvernig grunnformin móta alla hluti í umhverfi okkar
- hvernig breyta má tvívíðri línuteikningu svo sýnist þrívíð með réttum skyggingaraðferðum
- myndbyggingu
- formum og uppbyggingu þeirra
- tveggja punkta fjarvídd
- hvernig mismunandi teikniáhöld gefa mismunandi línu og áferðir
- hvernig teikna á mannslíkamann í fötum í réttum hlutföllum
- hvernig teikna má rými með fjarvíddarteikningu
- fjölbreytileika í meðhöndlun efniviðar
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa upplýsingar um listir og menningu
- vinna með mismunandi leiðir til listsköpunar
- nýta sér grunnþjálfun í tækni, verklagi, skapandi aðferðum og túlkun
- vinna frá hugmynd til lokaafurðar
- teikna rými í eins- og tveggja punkta fjarvídd
- vinna persónulega skissu- og hugmyndabók
- ræða eigin verk og annarra
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á skýran, ábyrgan og gagnrýnin hátt um listsköpun
- byggja upp myndverk
- nýta reglur og form í eigin listsköpun
- vinna á perónulegan hátt með eigin hugmyndir
- útfæra myndverk með tilliti til formfræði og myndbyggingar
- vinna með mismunandi leiðir til listsköpunar og hönnunar
- sýna frumkvæði og skapandi nálgun í verkum sínum