REKH3TV05 - Rekstrarhagfræði - Teygni og verðmyndun

Viðfangsefni: Teygni, framleiðsla, kostnaður, markaðsform, verðmyndun.

Lýsing: Fjallað er um hagkvæmasta val framleiðsluþátta, framleiðslu- og kostnaðarföll, framlegðarútreikninga og útreikninga á hagkvæmustu framleiðslusamsetningu, framboð, eftirspurn, nytjaföll, teygni og verðmyndun við mismunandi markaðsform. Stór hluti áfangans felst í stærðfræðilegri greiningu á rekstrarhagfræðilegum úrlausnarefnum. Áhersla er lögð á stærðfræðilega nálgun og notkun línurita til að leysa rekstrarhagfræðileg viðfangsefni, svo sem kostnað, tekjumyndun og jafnvægi í rekstri fyrirtækja. Nemendur eru m.a. þjálfaðir í að beita deildun við hámörkun hagnaðar.

Forkröfur: REKH2GS05 og STÆR2AF05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • notkun línurita til að skýra samband tveggja framleiðsluþátta, svo sem véla og manna, samband verðs og magns, samband kostnaðar og tekna við framleiðslu á vörum
  • mikilvægi framboðs og eftirspurnar til að viðhalda jafnvægi í framleiðslu og neyslu
  • helstu kostnaðarhugtökum, tekjum og afkomu fyrirtækja
  • jaðartekjum og jaðarkostnaði
  • tengsl jaðartekna, eftirspurnar og heildartekna

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina og reikna fastan og breytilegan kostnað, tekjur, framlegð og rekstrarjafnvægi
  • greina milli einokunar, fákeppni, verðleiðsagnar, einkasölusamkeppni og fullkominnar samkeppni á markaði
  • reikna verðteygni eftirspurnar og framboðs, tekjuteygni og verðvíxlteygni
  • teikna línurit
  • nota einfalda deildun til að finna hámörkun

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig um stöðu fyrirtækja á markaði með því að nota línurit
  • finna hagkvæmasta magn og eftir atvikum verð við mismunandi samkeppnisform
  • finna hagkvæmustu framleiðslusamsetningu