SAGA2FT05 - Saga - Fornir tímar

Viðfangsefni: Fundur Íslands, hrun Rómaveldis, menning fornaldar, nýöld

Lýsing: Í þessum byrjunaráfanga er sögunni fylgt í tímaröð frá fornöld fram til um 1800. Ýmis efni úr sögu Evrópu og Íslands valin, t.d. menningarheimur miðalda, víkingaöld og landnám Íslands, ný heimsmynd á tímum endurreisnar, vísindabyltingar, landafunda og siðaskipta um 1500. Lögð er áhersla á að nemandinn geti staðsett sig í samhengi sögunnar, sett sig í spor fólks frá ýmsum tímum og sjái tengsl við umhverfi sitt og samhengi á milli tímabila.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu tímaskeiðum mannkynssögunnar, hvað markar upphaf þeirra og endi og hvað einkennir þau
  • helstu hugtökum og atburðum tímabilsins með sérstakri áherslu á Íslandssögu
  • mismunandi menningarheimum
  • undirstöðuatriðum sagnfræði sem fræðigreinar og mismunandi tegundum heimilda

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina meginþætti og álitamál í sögulegri framvindu
  • leita eftir mismunandi sjónarhornum og mynda sér skoðun á sögulegum málefnumleita samhengis og tengsla milli tímabila
  • meta orsakir og afleiðingar í sögunni
  • tengja samtímaatburði við liðna tíma

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sjá sögu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins
  • setja sjálfan sig í samhengi sögunnar og í spor fólks á ýmsum tímum
  • taka þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um söguleg efni sem tekin eru fyrir í áfanganum
  • skilja gildi og afstæði sögulegrar frásagnar og skýringa
  • lesa og skilja sögulegan texta á gagnrýninn hátt
  • meta framlag liðinna kynslóða til mótunar nútímans
  • útbúa sjálfstæðan texta um sögulegt efni unnin upp úr heimildum
Til baka