SAGA2TÖ05 - Saga - Kalda tímar

Viðfangsefni: Íslands og mannkynssaga á 20. og 21. öld

Lýsing: 20. öldin er til umfjöllunar. Farið er í sögulega viðburði og þróun en einnig er tæpt á sögufrægum einstaklingum og þeir settir í samhengi við samfélag sitt. Farið er í átök hópa, þau greind og sett í sögulegt samhengi. Lögð er áhersla á skilning, greiningu og tjáningu nemenda um sögulega atburði og þróun. Áhersla er á fjölbreytni, bæði í vali á efnisþáttum, úrvinnslu á efni og námsmati. Færni í ritgerðasmíð og heimildavinnu er sett í forgang. Gerð er krafa um að nemendur tileinki sér vönduð vinnubrögð við heimilda- og ritgerðavinnu. Námið er þematengt og námsmat úr hverjum efnisþætti.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • völdum þáttum úr sögu 20. aldar
  • átökum hópa og ástæður þeirra
  • sagnfræðilegum vinnubrögðum
  • greiningu heimilda
  • mikilvægi vandaðrar heimildavinnu
  • áhrifum fortíðar á nútíð
  • mikilvægi sjálfstæðrar afstöðu til sögulegra atburða og þróunar

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa ólíka sagnfræðilega texta
  • greina stöðu ólíkra hópa
  • leita traustra heimilda og geta vitnað til þeirra á viðurkenndan hátt
  • tjá sig í ræðu og riti um sögulegt efni

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • átta sig á samhengi orsaka og afleiðinga sem metið er með umræðu og skriflegum verkefnum
  • taka þátt í umræðu um sagnfræðileg efni sem metið er með umræðum
  • beita gagnrýnni hugsun markvisst sem metið er með umræðum og skriflegum verkefnum
Til baka