SÁLF3ÞS05 - Sálfræði - Þroskasálfræði

Viðfangsefni: Þroskasálfræði, þroskakenningar, þroskafrávik, rannsóknaraðferðir

Lýsing: Kynning á þroskasálfræði, hugtökum hennar og helstu álitamálum. Litið er á söguna og þróun þroskasálfræðinnar og fjallað um helstu frumkvöðla hennar. Þroskaferill einstaklingsins frá getnaði til unglingsára er skoðaður. Einkum er tekin fyrir líkams- og hreyfiþroski, vitsmunaþroski, persónuleikaþroski og málþroski. Viðfangsefni þroskasálfræðinnar eins og t.d. námsörðugleikar og geðtengslamyndun sérstaklega skoðuð. Í lokin eru námsörðugleikar, geðtengsl og helstu geðraskanir barna teknar fyrir.

Forkröfur: SÁLF2IN05
 
Þekkingarviðmið: nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • þroskaferli einstaklingsins á hinum ýmsu sviðum
  • helstu hugtökum þroskasálfræðinnar
  • rannsóknaraðferðum þroskasálfræðinnar
  • helstu kenningum þroskasálfræðinnar, eins og kenningum um vitsmunaþroskann, siðgæðisþroskann og persónuleikaþroskann
  • líkamsþroska mannsins á öllum helstu stigum lífsins, en þó einkum á meðgöngu og fyrstu æviárum
  • rannsóknum á námsörðuleikum og leiðir til að vinna með þá
  • þroska geðtengsla
  • geðröskunum barna, einkennum þeirra og flokkun
 
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • miðla sérþekkingu sinni á hugtökum og kenningum þroskasálfræðinnar
  • afla upplýsinga, greina og meta viðfangsefni þroskasálfræðinnar og setja í fræðilegt samhengi
  • nýta fræðilegan texta á íslensku og ensku
  • spyrja og ræða á gagnrýnin hátt um viðfangsefni áfangans
 
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hefur aflað sér til að:
  • miðla fræðilegu efni um þroskasálfræði skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
  • vinna úr rannsóknargögnum og leggja mat á þau
  • fjalla um rannsóknir á erfðum og umhverfi og áhrifum þeirra á þroskaferilinn
  • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
  • taka þátt í rökræðum um málefni sem tengjast þroskasálfræðinni
  • nota hugmyndir þroskasálfræðinnar, við uppeldi og samskipti við börn