Viðfangsefni: Endurlífgun, meðferð, áverkar.
Lýsing: Í áfanganum er fjallað um aðgerðir á vettvangi, skoðun og mat. Farið er yfir endurlífgun, helstu blæðingar, lost og viðbrögð við lostástandi. Einnig eru teknar fyrir helstu tegundir sára, umbúðir og sárabindi og farið í helstu orsakir bruna, flokkun brunasára og skyndihjálp við bruna. Helstu höfuð, háls og hryggáverkum eru gerð skil ásamt brjóst-, kvið- og mjaðmaáverkum. Einnig er farið í beina-, liðamóta- og vöðvaáverka. Nemandinn lærir að spelka útlimi sem orðið hafa fyrir áverka. Farið er í bráða sjúkdóma, eitranir, bit og stungur, ásamt umfjöllun um viðbrögð við kali, ofkælingu og háska af völdum hita. Farið er í björgun og flutning einstaklinga af slysstað.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugmyndafræði skyndihjálpar
- hvernig mat á slösuðum einstaklingi á slysstað er framkvæmt
- framkvæmd endurlífgunar
- blæðingum og viðbrögðum við lostástandi
- helstu tegundum sára, umbúða og sárabinda
- helstu tegundum brunasára og skyndihjálp vegna brunasára
- helstu áverkum á líkama
- fyrstu viðbrögðum við kali, ofkælingu og ofhitnun
- fyrstu viðbrögðum vegna bráðra sjúkdóma, eitrana, bits eða stungna
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- bregðast við dauðadái
- framkvæma mat og skoðun á slösuðum einstaklingum
- flytja slasaðan einstakling af slysstað á öruggan hátt
- framkvæma blástursmeðferð og hjartahnoð
- búa um sár og velja umbúðir við hæfi
- stöðva blæðingu og búa um blæðandi sár
- beita viðeigandi meðferð við losti
- spelka útlimi eftir áverka/tognanir
- veita fyrstu hjálp vegna brunasára
- veita fyrstu hjálp vegna kals, ofkælingar og ofhitnunar
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta aðstæður á slysstað og bregðast við þeim á viðeigandi hátt
- veita skyndihjálp vegna bráðra sjúkdóma, dauðadás, slysa, líkamlegra og sálrænna áverk