SPÆN1DA05 - Spænsaka - Daglegar athafnir, 2. áfangi í spænsku

Viðfangsefni: Orðaforði, málfræði, tjáning og lestur og ritun

Lýsing: Megináhersla er á samtalsæfingar úr efni áfangans, bætt er við orðaforða sem tengist tómstundum, ferðalögum og daglegum athöfnum. Nemendur læra aðrar tíðir sagna og læra að segja frá liðnum atburðum. Lögð er áhersla á að bæta jafnt og þétt virkan orðaforða nemenda. Lesnir eru textar af menningarlegum toga og nemendur kynnast frekar hinum fjölbreytta heimi spænskunnar.

Forkröfur: SPÆN1EL05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem tengist athöfnum daglegs lífs, námi, vinnu, húsnæði, borg og bæ og ferðalögum
  • tíðum og beygingu sagna í núliðinni tíð og þátíð
  • uppbyggingu spænsks máls
  • framburðarreglum og áherslum tungumálsins
  • Rómönsku Ameríku og einstökum löndum í þeim hluta heimsins

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • að segja skriflega frá daglegu lífi sínu og annarra í nútíð og þátíð
  • að lesa einfalda texta og finna upplýsingar í einföldu hversdagslegu efni
  • að skilja setningar og algeng orð tengd þekkingarviðmiðum áfangans
  • að bjarga sér í hinum ýmsu aðstæðum daglegs lífs, s.s. í búðum, á veitingastöðum og að spyrja til vegar
  • að segja skoðun sína á afmörkuðu efni og gefa ráð og segja frá framtíðaráformum sínum í grófum dráttum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með einföldu töluðu máli í frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum þar sem fjallað er um kunnugleg efni
  • ná upplýsingum og aðalatriðum úr lesnum textum, s.s stuttum tímarits- eða blaðagreinum sem fjalla um kunnlegt efni
  • takast á við aðstæður í almennum samskiptum, beita þeim samskiptavenjum sem lærðar hafa verið
  • taka þátt í samræðum með hjálp viðmælandans
  • fjalla um málefni sem tengjast efni áfangans í ræðu og riti
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • ráða við kringumstæður sem tengjast efni áfangans
Til baka