Viðfangsefni: Lestur, ritun, hlustun, munnleg tjáning, endursögn og þýðingar, málfræði
Lýsing: Nemendur öðlast leikni í endursögn og að segja frá liðnum atburðum í þátíð í ræðu og riti. Þeir lesa létta texta sem tengjast menningu og samfélagi hins spænskumælandi heims, bæði í fortíð og nútíð. Einnig er lesin stutt smásaga. Unnin eru fjölbreytt verkefni sem reyna á alla færnisþætti tungumálsins. Áhersla er lögð á að nemendur auki við orðaforða sinn jafnt og þétt í gegnum áfangann. Nemendur læra að setja fram skoðun sína og rökstyðja hana. Nemendur eru þjálfaðir í að nýta sér hjálpargögn við námið sitt og hvattir til að tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð og þær námsaðferðir sem kenndar eru í áfanganum.
Forkröfur: SPÆN1DA05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða sem tengist þjóðfélagsaðstæðum á mismunandi tímum, siðum, venjum og menningu
- málkerfi spænskunnar og muninum á hinum mismunandi þátíðum spænskunnar
- framtíðarformi sagna
- menningu og samfélagi ýmissa landa hins spænskumælandi heims
- ólíkum framburði spænskunnar eftir málsvæðum
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrifa einfaldan samfelldan texta um efni sem hann þekkir og með orðaforða sem um ræðir
- skrifa texta sem lýsir reynslu og hughrifum og fjalla um mismunandi siði og venjur
- segja skoðun sína og rökstyðja hana
- geta lýst stöðum, þjóðfélagslegum og persónulegum aðstæðum bæði nú á tímum, áður fyrr og í framtíðinni
- lesa léttlestrarefni, s.s. blaðagreinar og bókmenntatexta við hæfi
- skilja aðalatriði venjulegs talmáls um efni sem hann þekkir og tengist efni áfangans
- skilja í grófum dráttum aðalatriði í sjónvarpsþáttum og útvarpsþáttum um málefni líðandi stundar
- nýta sér upplýsingatækni og önnur hjálpargögn í náminu
- vinna sjálfstætt
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fylgjast með töluðu máli í frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum þar sem fjallað er um kunnugleg efni
- ná upplýsingum og aðalatriðum úr lesnum textum, s.s. stuttum tímarits- eða blaðagreinum sem fjalla um kunnuglegt efni og miðlað þeim
- takast á við aðstæður í almennum samskiptum, beita þeim samskiptavenjum sem lærðar hafa verið
- taka þátt í undirbúnum samræðum um efni sem hann þekkir og hefur áhuga á eða tengist efni áfangans
- fjalla um reynslu sína, skoðanir, atburði, væntingar og framtíðaráformum á mjög skýran hátt í ræðu og riti
- meta eigið vinnuframlag og framfarir í náminu
- eiga samskipti og geta bjargað sér við mismunandi aðstæður
- greina mun á þjóðfélagslegum aðstæðum hinna ýmsu landa þar sem spænska er töluð