STÆR1UB05 - Stærðfræði - Stærðfræðigrunnur, seinni hluti

Viðfangsefni: forgangsröð aðgerða, almenn brot , bókstafareikningur

Lýsing: Í þessum áfanga verður reynt að tengja það daglegu lífi og hagnýtum viðfangsefnum. Markmið áfangans er að auka kunnáttu nemenda í grundvallaratriðum stærðfræðinnar og að nemendur nái sömu kunnáttu og krafist er til grunnskólaprófs

Forkröfur: STÆR1UA05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tengslum margföldunnar og deilanleika
  • forgangsröð aðgerða
  • almennum brotum og tugabrotum
  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings
  • 1. stigs jöfnum með einni óþekktri stærð
  • jöfnu beinnar línu og hnitakerfi
  • hlutfallareikningi og grunnatriðum í prósentureikningi
  • einföldum flatarmáls- og rúmmálsreglum

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita helstu aðgerðum á heilar tölur og nota víxlreglu, tengireglu og dreifireglu í talna- og bókstafareikningi
  • setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
  • forgangsraða aðgerðum og nota sviga
  • reikna prósentur og finna hlutföll milli stærða
  • beitabókstafareikningi, liðun og þáttun
  • leysa jöfnur með einni óþekktri stærð
  • vinna með jöfnu beinnar línu
  • leysa ýmis rúmfræðileg dæmi
  • vinna sjálfstætt í stærðfræðilegum verkefnum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta og unnið til baka frá þekktum stærðum
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum huga og temja sér jákvætt hugarfar gagnvart faginu