STÆR2HG05 - Stærðfræði - Hagnýt stærðfræði og mengjareikningur, áfangi á félagsvísindabraut

Viðfangsefni: Bókstafareikningur, frumtölur, mengjareikningur, talningarfræði, prósentur, vextir og verðtrygging, vísitölur og tölugildi

Lýsing: Þessi áfangi er fyrir nemendur á félagsvísinda- og málabraut. Í þessum áfanga er bætt ofan á skilning nemenda á algebrureikningi s.s.með lausn jafna og ójafna. Þá er tekin fyrir mengjafræði og talningafræði. Farið er dýpra í prósentureikning og vaxtareikning. Þá er tekið fyrir fjármálalæsi og nemendum kynnt hugtök s.s vísitala, skattaprósenta, persónuafsláttur, verðtrygging og verðbólga. Að lokum er kynnt hugtakið tölugildi og nemendur leysa tölugildisjöfnur og ójöfnur.

Forkröfur: Nemandi skal hafa lokið grunnskólaprófi með hæfnieinkunn B, B+ eða A, eða staðist áfangann STÆR1AR05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings
  • lausn jafna
  • talnamengjunum N,Q, Z og R
  • mengareikningi og notkun Vennmynda til lausnar verkefna
  • frumtölum og frumtöluþáttun
  • reglum um tölugildi og bil á rauntöluásnum
  • margföldunarreglunni, umröðunum og samantektum í talningarfræði
  • prósentureikningi
  • hvernig lán og innistæður hækka eða lækka í samræmi við breytingu á vísitölum og vöxtum

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota reglur og formúlur til lausnar verkefna
  • nota undirstöðureglur talna- og bókstafareiknings
  • nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
  • beita margföldunaraðferðinni, umröðunum og samantektum í talningarfræði
  • setja upp og túlka vísitölutöflur, reikna út raunvexti, jafnvirði og raungildi lána
  • leysa töluglidisjöfnur og ójöfnur og setja lausnir upp á talnalínu

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega og á viðeigandi hátt
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt eftir og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og riti
  • greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræðinnar sem birtast m.a. í fjölmiðlum
Til baka