STÆR3ÁT05 - Stærðfræði - Ályktunartölfræði

Viðfangsefni: Ályktunartölfræði og tölfræði í mismunandi tölvuforritum

Lýsing: Nemendur fá frekari kynningu á þeim aðferðum sem notaðar eru í ályktunartölfræði. Fjallað er um þær aðferðir sem notaðar eru til að draga ályktanir um úrtak á grundvelli upplýsinga um þýði. Fjallað verður um notkun normaldreifinga í þessum tilgangi, t-dreifingar, kíkvaðratprófanir og F-dreifingar. Einnig er fjallað um fylgni, tilgátur og prófanir. Gögn verða sett fram með sérhæfðum tölfræðiforritum s.s. Excel, Geogebra eða Gap-minder. Nemendur velja sér rannsóknarefni, þar sem þeir nýta alla lærdómsþætti áfangans til að vinna niðurstöður og gera þeim skil.

Forkröfur: STÆR2TL05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • líkindadreifingu sem líkani við útreikning líkinda
  • grunnatriðum úrtaksfræði og meginmarkgildissetningu tölfræðinnar
  • úrtaksdreifingu við framsetningu tölfræðilegra ályktana
  • hugtökum línulegrar aðhvarfsgreiningar og bestu línu gegnum gagnapunkta í sléttum fleti
  • ýmsum tölfræðiprófum sem notuð eru til að draga ályktanir
  • framsetningu tilgáta og prófana á þeim

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota hugtökin öryggisbil, öryggismörk, skekkjumörk, öryggisstig o.s.frv.
  • setja fram tilgátu og gert á henni viðeigandi tölfræðilegt próf
  • finna fylgni, jöfnu bestu línu og gert spá ásamt því að túlka fylgnistuðla
  • nota ýmis tölfræðipróf, t.d. Z-próf og t-próf
  • nýta tölfræðileg forrit við gagnavinnslu og framsetningu, prófanir og ályktanir

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu tölfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • kynna ólíkar aðferðir við framsetningu tölfræðilegra viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í tölfræðinni og vinna með þau
  • beita skipulegum aðferðum við að lausn tölfræðilegra viðfangsefna
  • setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti