STÆR3HT05 - Stærðfræði - Heildareikningur og tvinntölur, valáfangi á raunvísindabraut

Viðfangsefni: Hagnýting heildareiknings, tvinntölur , 1. og 2. stigs deildajöfnur

Lýsing: Hagnýtur heildareikningur, andhverf hornaföll, skilgreining tvinntalna, reiknireglur sem gilda í mengi þeirra og samsvörun tvinntalna við vigra, og pólform tvinntalna, 1. og 2. stigs deildajöfnur. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og nemendur hvattir til að vinna saman að lausn verkefna, ræða saman um lausnir og lausnaraðferðir.

Forkröfur: STÆR3HD05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi
  • deildajöfnum, sérlausn og fullnaðaðarlausn
  • tvinntölum og tengslum tvinnfalla og raunfalla
  • hvernig nýta má tvinntölur til að þátta margliður með rauntölustuðlum

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
  • breyta tvinntölu af rétthyrndu formi á pólform og öfugt
  • reikna með tvinntölum
  • leysa deildarjöfnur af 1. og 2. stigi

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur