STÆR3HV05 - Stærðfræði - Hornaföll og vigrar, 2. áfangi á raunvísindabraut
Viðfangsefni: Hornaföll, einingahringur, sinus ög cosinusbylgjur, vigrar
Lýsing: Farið verður í hornaföll rétthyrndra þríhyrninga, hornafallareglur og hornafallajöfnur, einingahringurinn og tengsl hans við hornaföll, cosinus og sinusferlar skoðaðir, vigrar og vigurreikningar og jafna hrings. Lögð er áhersla á öguð vinnubrögð og nemendur hvattir til að vinna saman að lausn verkefna
Forkröfur: STÆR2AF05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- samlagningu vigra, blönduðu margfeldi og innfeldi
- tengslum innfeldis við horn milli vigra
- tengslum hnita og vigurs
- ákveður
- stikun
- notkun hornafalla við könnun á rétthyrndum þríhyrningum
- sínus- og kósínusreglu fyrir þríhyrninga og flatarmálsreikningar með ákveðum
- hvernig hornaföll tengjast einingahringnum.
- reglum um tengsl hornafalla, summu-, þáttunar- og liðunarformúlur hornafalla ásamt formúlum um tvöföldun og helmingun horns
- lotubundnum föllum í gröfum hornafalla, sinusbylgju og cosinusbylgju
- muninum á gráðum og radiönum
- jöfnu hrings
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita vigurreikningi og hornaföllum í rúmfræði
- teikna vigra og sýna niðurstöður út frá því
- nota ákveður til greiningar á línulegum kerfum
- skilgreina bæði hring og línu með stikun
- beita einingarhringnum með ýmsu móti í hornafallafræði
- beita umritunarformúlum hornafalla
- leysa helstu tegundir hornafallajafna
- teikna sinus – og cosinusbylgjur út frá gefnum upplýsingum
- breyta gráðum yfir í radiana og nota nákvæm gildi radiana
- beita jöfnu hrings til að finna radius hans og miðpunkt
- leiða út stærðfræðilegar sannanir
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt í máli og riti
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefni og vinna með þau
- beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
- geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og riti
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga