STÆR3MD05 - Stærðfræði - Markgildi og deildun, 3. áfangi á raunvísindabraut

Viðfangsefni: Deildun, föll og markgildi

Lýsing: Aðalefni áfangans er deildun falla og könnun þeirra, skilgreining á afleiðu, eintækt, átækt og gagntækt fall, andhverft fall, vísisföll og lograföll, markgildi og samfelld föll. Nemendur eru hvattir til að vinna saman að lausn verkefna þegar við á og temja sér góð og öguð vinnubrögð við framsetningu lausna.

Forkröfur: STÆR3HV05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • meðhöndlun algengustu falla, s.s. margliðu-, veldis- og rótarfalla
  • markgildum falla
  • lausnum lograjafna
  • deildun falla, s.s. vísis- og lografalla og samsettra falla

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • finna afleiður falla út frá reiknireglum um deildun
  • nota skilgreiningu á afleiðu til að finna afleiður falla
  • reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall sé samfellt
  • finna útgildispunkta og beygjuskil
  • nota logra til að leysa jöfnur
  • finna andhverfu falla
  • finna jöfnu snertils við feril falls
  • teikna feril falls

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega og á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námefni
Til baka