ÞJÓÐ2GH05 - Þjóðhagfræði - Grunnhugtök og markaðsöfl

Viðfangsefni: Grunnhugtök og samspil þeirra, hagfræðileg orsakasamhengi, markaðsöfl, utanríkisviðskipti

Lýsing: Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni hagfræðinnar s.s. efnahagshringrásin, framboð og eftirspurn, verðmyndun í fullkominni samkeppni, utanríkisviðskipti, fjármál og hlutverk hins opinbera, mismunandi hagkerfi og kenningar, þjóðarframleiðsla og hagvöxtur, verðbólga og vísitölur. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi. Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna, hlutfallareiknings, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum. Áhersla er lögð á að nemendur geti hagnýtt sér Netið til öflunar hagfræðilegra upplýsinga.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grundvelli hagfræðinnar sem fræðigreinar, meginviðfangsefnum og grundvallarspurningum
  • uppruna tekna samfélagsins
  • helstu kenningum Adam Smith og John M. Keynes
  • markaðsöflunum, jafnvægi markaðarins og verðteygni
  • helstu einkenni markaðshagkerfis, blandaðs hagkerfis og miðstýrðs áætlanahagkerfis
  • grunneiningum hagkerfisins og meginhlutverk þeirra
  • lögmálinu um minnkandi afrakstur í framleiðslu
  • hringrás opins, blandaðs hagkerfis
  • hlutverki og umsvifa hins opinbera í efnahagslífinu og aðferða til fjármögnunar þess
  • einkavæðingu
  • helstu markmið og leiðir við stjórn efnahagsmála
  • verðbólgu, mismunandi tegundum verðbólgu, orsökum, afleiðingum og hugsanlegum lausnum
  • helstu aðferðum og stærðum uppgjörs þjóðhagstærða
  • hagvexti, þýðingu hennar og forsendur
  • atvinnuleysi, orsökum, afleiðingum og hugsanlegum lausnum
  • greiðslujöfnuði og samsetningar hans með sérstakri áherslu á viðskiptajöfnuð
  • áhrifaþætti um nafngengi gjaldmiðla og tilhögun við skráningu á gengi íslensku krónunnar
  • helstu ákvörðunarþátta utanríkisviðskipta, svo sem kenninga um hlutfallslega yfirburði og algjöra yfirburði
  • helstu aðila á peningamarkaði og hlutverki seðlabanka Íslands
  • efnahagslegu samhengi í þjóðfélaginu

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna út markaðsjafnvægi og verðteygni út frá gefnum stærðfræðilegum forsendum um eftirspurn og framboð
  • reikna út helstu stærðir þjóðhagsreikninga
  • reikna verðbólgu og breytingu á vísitölum
  • reikna út þjóðhagstærðir á föstu verðlagi og hlutfallslegar breytingar á milli ára
  • reikna hagvöxt
  • reikna atvinnuleysi
  • reikna út hlutfallslega yfirburði í milliríkjaviðskiptum þjóða
  • hagnýta sér netið til öflunar hagfræðilegra upplýsing

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útskýra lögmál markaðarins og meginþætti verðmyndunar á markaði
  • nota þá þekkingu sem hann hefur öðlast til lausnar á raunverulegum viðfangsefnum hagfræðinnar
  • draga ályktanir um samspil mismunandi efnahagsþátta- og stærða
  • yfirfæra hagfræðilegar kenningar og aðferðir yfir á raunveruleg dæmi
  • bera saman ýmsar þjóðhagsstærðir óháð tíma
  • lesa um efnahagsleg málefni og hlusta á umræður með skilningi
  • taka þátt í daglegri efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði
  • beita upplýsingatækni við öflun upplýsinga og lausn verkefna