ÞÝSK1DA05 - Þýska - Daglegar athafnir, 2. áfangi í þýsku

Viðfangsefni: Málfræði, orðaforði og málfærni

Lýsing: Helstu atriði ÞÝSK1EL05 eru rifjuð upp um leið og bætt er við orðaforða og málfræði. Áhersla er lögð á að þjálfa áfram alla málfærniþætti: munnlega og skiflega tjáningu, hlustun og lesskilning. Unnið er með orðaforða sem tengist nánasta umhverfi nemandans, daglegum athöfnum, áhugamálum og ferðalögum. Þá eru nemendur einnig þjálfaðir í að segja frá liðnum atburðum. Menningu og staðháttum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna m.a. í gegnum lestur viðeigandi texta sem varpa ljósi á daglegt líf.

Forkröfur: ÞÝSK1EL05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum, ferðalögum, störfum, vinnu og heilsu
  • myndun og notkun falla og núliðinnar tíðar algengustu sagna,
  • framburðarreglum og tónfalli
  • þýskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu og siði þjóðanna
  • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja einfaldar setningar, spurningar og upplýsingar sem tengjast daglegum athöfnum og ferðalögum
  • skilja einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli
  • skilja stutta texta þar sem sagt er frá daglegu lífi, atburðum og tilfinningum eða óskað er eftir upplýsingum
  • greina lykilatriði í einföldum textum, t.d. smásögum
  • spyrja og svara einföldum spurningum um liðna atburði

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um persónulega hagi og málefni sem hann þekkir
  • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
  • skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsingar
  • segja frá sjálfum sér og nánasta umhverfi sínu, s.s. áhugamálum, atvinnu og ferðalögum
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
  • tjá sig um liðna atburði í ræðu og riti
  • skrifa um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu