UMHV3AU05 - Umhverfisfræði - Umhverfis- og auðlindafræði

Viðfangsefni: Umhverfið og auðlindir

Lýsing: Í þessum áfanga er fjallað um umhverfis- og auðlindafræði. Lögð er áhersla á tengsl umhverfisins og nýtingu auðlinda. Fjallað er um helstu málefni jarðarinnar og áhrifum mannsins á hana. Megináhersla er á verkefnavinnu nemenda og að þeir nýti sér sem fjölbreyttastar aðferðir við nám og framsetningu verkefna. Lögð er áhersla á vísindaleg og sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur tengi þekkingu sína við alþjóðlegt umhverfi. Nemendur leiti sér heimilda og rannsóknargagna og vinni með þau á gagnrýnin, skýran og ábyrgan hátt.

Forkröfur: ENSK2SO05, ÍSLE2HU05 og nemendur skulu hafa lokið a.m.k einum áfanga í raungreinum (eðlis-, efna-, líff- eða jarðfræði).

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fjölbreyttum hugtökum tengdum umhverfismálum, svo sem auðlindum, sjálfbærni, orkugjöfum, burðargetu, samspili auðlinda og nýtingar þeirra
  • áhrifum mannsins á umhverfi sitt
  • helstu orkugjöfum jarðarinnar
  • skiptingu auðs og auðlinda jarðarinnar
  • áhrifum fólksfjölda á nýtingu auðlindaskiptingu landsframleiðslu eftir þjóðum
  • alþjóðasamþykktum á sviði umhverfismála
  • flokkun og nýtingu auðlinda
  • mikilvægi gildra rannsóknargagna og heimilda
  • raunhæfri markmiðasetningu og afmörkun viðfangsefna
  • þekkingu sem tengist umhverfi nemandans svo og alþjóðlegu umhverfi sem nýtist til frekara náms

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leita sér upplýsinga og lesa fræðilegan texta á íslensku og ensku um lífríki jarðar og auðlindir
  • skilja samhengi nýtingar auðlinda og áhrifa hennar á lífríki
  • taka þátt í umræðu um hugtök tengd umhverfismálum á ábyrgan hátt og af þekkingu
  • skipuleggja og vinna frá grunni að verkefnum á ábyrgan og skipulegan hátt
  • vinnu úr heimildum samkvæmt viðurkenndum reglum um meðferð þeirra
  • beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu efnis
  • tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigið verkefni

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verkefnis
  • taka ábyrga, upplýsta og sjálfstæða afstöðu um málefni tengdum umhverfinu
  • greina, tjá sig um og meta eigin verkefni og annarra af þekkingu, víðsýni og virðingu
  • nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrlausn nýrra viðfangsefna
  • skilja samspil mannsins við nærumhverfi sitt
  • sýna siðferðilega ábyrgð í umgengni sinni við umhverfi í verki
  • átta sig á áhrifum fólksfjölgunar, nýtingar auðlinda, og sjálfbærar þróunar á umhverfi
  • breyta hugmynd í afurð
  • geta metið eigið vinnuframlag og annarra í tengslum við fræðigreinina
  • geta tengt hæfni sína og þekkingu við alþjóðlegt umhverfi