UPPE3BV05 - Uppeldisfræði - Börn og velferð

Viðfangsefni: Aðstæður barna og unglinga

Lýsing: Áfanginn beinir spjótum sínum að skilyrðum barna og unglinga. Áhrifaþættir í lífi barna og unglinga eru til umfjöllunar, til dæmis er tengjast félagslegum og andlegum erfiðleikum. Rýnt er í orsakir, afleiðingar og úrræði er varða líðan og velferð barna og unglinga. Fjallað er um áföll, sorg og sorgarviðbrögð, áhrif skilnaða og forræðisdeilna, kvíða og kvíðaviðbrögð, einelti og forvarnir, réttindi og lög um barnavernd, hlutverk barnaverndarstofnanna, ofbeldi og vanrækslu gagnvart börnum, ólíkar skólastefnur og samband heimila og skóla. Áfanginn byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnunámi, umræðum og heimildarvinnu.

Forkröfur: UPPE2UM05

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • áhrifum skilnaða og forræðisdeilna á börn
  • ólíkum sambúðar- og fjölskylduforma
  • birtingarmyndum ofbeldis og vanrækslu gagnvart börnum
  • einkennum og afleiðingum eineltis
  • forvörnum gegn einelti
  • hlutverki mismunandi stofnanna í barnaverndarmálum
  • réttindum barna
  • viðbrögðum barna við áföllum


Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina og meta þær aðferðir sem notaðar eru í barnaverndamálum
  • greina á milli mismunandi viðbragða barna við áföllum
  • meta sértæk mál með gagnrýnum hætti
  • afla upplýsinga og heimilda
  • túlka ólíkar kenningar og niðurstöður rannsókna


Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í umræðum um stöðu og réttindi barna og unglinga
  • kortleggja aðstæður barna og unglinga í raunveruleikanum
  • vinna úr upplýsingum með skipulögðum og fræðilegum aðferðum
  • meta og kynna niðurstöður gagnavinnu
  • vinna í samvinnu við aðra að semeiginlegum verkefnum
Til baka