VÍSV1HA05 - Vísindaleg vinnubrögð - Heimildarýni og aðferðafræði

Viðfangsefni: Heimildarýni, framsetning fræðilegra gagna, aðferðafræði rannsókna

Lýsing: Áfanginn er undirbúningsáfangi fyrir nám á félagsvísindabraut. Farið er í hvað aðgreinir félagsvísindin frá öðrum vísindum, skilgreingingar á hugtökum, aðferðafræði rannsókna, mat á niðurstöðum og nokkur helstu hugtök. Lögð er áhersla á að nemar geti lesið út úr myndum og línuritum. Gagnrýnin hugsun er þjálfuð. Notkun heimilda og framsetning heimildaskrár. Ritrýni og heimildaleit. Uppbygging ritgerða.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu fræðilegu vinnubrögðum og tilgangi þeirra
  • nokkrum helstu einkennum APA heimildakerfisins
  • helstu hugtökum og aðferðum aðferðafræðinnar
  • hvað eru vísindi og hvað aðgreinir félagsvísindi frá öðrum vísindagreinum
  • mikilvægi siðareglna

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita gagnrýnni hugsun við hagnýtingu fræðilegs efnis
  • miðla fræðilegu efni á skilmerkilegan hátt
  • greina upplýsingar úr myndrænum gögnum s.s. súluritum
  • skilja og nota hugtök greinanna
  • nota hugtök aðferðarfræðinnar

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • afla sér fræðilegra heimilda og geta lagt traust mat á þær
  • tefla saman ólíkum heimildum og sett þær fram á skilmerkilegan hátt
  • rökræða og miðla eigin niðurstöðum á skýran hátt
  • hagnýta þekkingu aðferðarfræðinnar í verkefnum
  • meta siðferðileg álitamál í þessum greinum
  • leggja gagnrýnið mat á skilgreiningu hugtaka