Hvað er farsældarþjónusta?

Hvað er farsæld barna?

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana í skólakerfinu.

Í lögunum kemur fram að allir nemendur undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra geta leitað til tengiliðar innan skólans. Tengiliður veitir upplýsingar, leiðbeinir og beinir málum í réttan farveg, eftir því sem þörf krefur. Ef þörf er á frekari aðstoð geta foreldrar og börn, með aðstoð tengiliðar, lagt fram beiðni um samþætta þjónustu hjá sveitarfélagi. Tengiliður getur þá óskað eftir upplýsingum frá þeim sem þjónusta barnið með það að markmiði að skipuleggja og fylgja eftir samþættri þjónustu við barnið. Ef barnið hefur þörf fyrir frekari þjónustu til lengri tíma skal sveitarfélag þar sem barn á lögheimili nefna málstjóra á grundvelli laganna. Tengiliður getur aðstoðað börn og foreldra við að koma upplýsingum um þörf fyrir tilnefningu málsstjóra til sveitarfélags.

Hlekkir á lögin:

Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna

Reglugerð um tengiliði og málsstjóra

Verkefnastjóri með innleiðingu farsældarlaganna:

Helga Valtýsdóttir, náms- og starfsráðgjafi

Tengiliðir farsældarlaganna í Flensborgarskólanum eru:

Áslaug Þórðardóttir sviðsstjóri á starfsbraut (í leyfi á skólaárinu 2024 - 2025) – aslaug@flensborg.is

Alda Bragadóttir (aldab@flensborg.is) og Hafdís Ósk Jónsdóttir (hafdisosk@flensborg.is), tengiliðir á starfsbraut

Helga Valtýsdóttir – helgav@flensborg.is

Rannveig Klara Matthíasdóttir rannveigklara@flensborg.is

Sunna Þórarinsdóttir – sunna@flensborg.is

Hlutverk tengiliðar er:

  • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
  • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
  • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns
  • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
  • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
  • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem þörf er á