10 heilræði á tímum kórónuveiru - MYNDBÖND

Hér gefur að líta tíu myndbönd sem birst hafa undanfarna mánuði á miðlum skólans. Þar eru kennarar og nemendur í aðalhlutverkum. Myndböndin byggja á 10 heilræðum á tímum kórónuveiru sem Landlæknisembættið gaf út í byrjun faraldursins. Þar er unnið með niðurstöður rannsókna á því hvað sé gagnlegt að gera til að hlúa að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan. Við gerðum textana að okkar en gættum þess að skilaboð og innihald heilræðanna skiluðu sér.