Flensborgarar áfram í Gettu betur

Fyrsta umferð Gettu betur fór fram í Útvarpshúsinu mánudagskvöldið 13. janúar. Lið Flensborgarskólans er skipað þeim Óskari Karli Ómarssyni, Þorsteini Ómari Ágústssyni og Emilíu Ósk Hauksdóttur. Liðið mætti Kvennaskólanum í Reykjavík en tapaði naumlega, 26-24, eftir æsispennandi keppni en keppnin var jafnframt stigahæsta viðureign kvöldsins og því fóru bæði liðin áfram í næstu umferð.

Lið Flensborgarskólans mætir liði Menntaskólans á Akureyri í næstu umferð sem fer fram 23. janúar.