- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
- Spurt og svarað
Tekið er við umsóknum um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Allir þeir sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Flensborgarskólanum og eru í framhaldsnámi geta sótt um styrk.
Umsóknir verða að berast rafrænt á netfangið erla@flensborg.is, eigi síðar en á miðnætti föstudaginn 3. desember 2021. Umsóknin skal merkt Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar.
Umsóknum þarf ekki að skila á sérstöku eyðublaði, en þeim þurfa að fylgja staðfest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk auk annarra upplýsinga sem umsækjendur telja að styðji þeirra umsókn.
Nánari upplýsingar gefur Erla skólameistari í síma 565-0400.