Fréttir úr skólastarfi - birting einkunna, prófsýning, útskrift og fleira

Þá er próftímabilinu formlega lokið. Á morgun, miðvikudag, 24. maí kl: 09:00, eru birtar einkunnir í INNU. Sama dag fer fram prófsýning, kl 11:30 – 13:00, sjá nánari upplýsingar um fyrirkomulag prófsýningar hér. Endilega lítið við og kíkið á prófin ykkar og/eða lokaverkefni hjá kennurum ykkar.

Brautskráning fer fram við hátíðlega athöfn laugardaginn 27. maí kl. 13:00 og eru útskriftarefni hér með minnt á að koma og skoða námsferlana sína á morgun kl. 12:30. Æfing með útskriftarefnum fyrir athöfnina fer svo fram á föstudaginn kl. 17:00.

Við mætum aftur til leiks mánudaginn 21. ágúst, en þá hefst kennsla samkvæmt glænýrri stundatöflu sem verður birt um miðjan ágústmánuð. Þá erum við þessa dagana að kynna skólastarfið út á við og það væri gaman ef þið legðuð okkur lið – við getum öll verið stoltir Flensborgarar og allar upplýsingar um skólann okkar, bekkjarkerfið á fyrsta ári, brautirnar og margt, margt fleira má finna á heimasíðu skólans.

Áfram Flensborg og hafið það sem allra best í sumar!