Fréttir úr skólastarfinu - dimmisjón á morgun, námsversdagur og upplestrarfrí og fleira

Við erum komin fram á síðustu daga í kennslu. Á morgun fer fram dimmisjón, en þá kveðja útskriftarefni skólans starfsfólk með skemmtilegum hætti. Kennsla fellur því niður í fyrsta tíma á morgun. Síðasti kennsludagur á önninni er föstudagurinn 1. desember og er hann hugsaður sem námsversdagur þar sem nemendur geta komið í stofur og hitt kennara sína til að fá aðstoð við að undirbúa lokapróf og/eða skila lokaverkefnum, sjá skipulag hér. Nemendur eru hvattir til að nýta tímann vel þessa síðustu daga, mæta vel og skila öllum verkefnum, þá gengur allt vel.

 

Mánudagurinn 4. desember er upplestrardagur fyrir nemendur og því fellur öll kennsla niður. Síðan hefjast próf samkvæmt próftöflu þriðjudaginn 5. desember. Lokaprófunum lýkur miðvikudaginn 13. desember en þá fara síðustu forfallaprófin fram. Gott er að kynna sér prófreglur skólans en þar segir m.a. að nemendur skuli vera stundvísir í próf, nýta eingöngu þau gögn sem leyfð eru í prófinu og að óheimilt sé að aðstoða aðra eða þiggja aðstoð í prófi. Einkunnir verða birtar að morgni 15. desember og prófsýning fer fram síðar sama dag, eða kl. 11:00 – 12:30. Við munum auglýsa þessar dagsetningar vel þegar nær dregur en allar upplýsingar um skólastarfið má finna á heimasíðu skólans. Þá er vert að vekja athygli á því að ef færa þarf próf vegna veikinda á próftíma þá minnum við á mikilvægi þess að láta skrifstofu skólans vita sem fyrst á prófdegi. Ég minni einnig á að lokadagur til að skila inn vottorðum vegna veikinda síðustu daga annarinnar er föstudaginn 8. desember.

Að lokum minnum við á jólakósýkvöld NFF sem fer fram í kvöld. Spilavinir munu heimsækja nemendur og boðið verður upp á jólamynd, piparkökur og fleira.

 

Gangi ykkur vel í öllu því sem framundan er.