Fréttir úr skólastarfinu - Uppsópsdagur á morgun, FG-Flens 16. október, miðannarmat og vetrarfrí

Kæru nemendur og foreldrar,

Það er ýmislegt framundan í skólastarfinu sem nauðsynlegt er að vita af. Fyrst má nefna svokallaðan námsmatsdag, eða uppsópsdag, sem er á morgun, fimmtudaginn 10. október. Engin kennsla fer fram þannig að nemendur geta nýtt tækifærið til að vinna upp það sem út af stendur; klára t.d. verkefni vikunnar eða rifja upp fyrir næsta próf. Og þegar komið er fram í næstu viku þá fer FG- FLENS dagurinn fram miðvikudaginn 16. október, þar sem skólarnir, bæði nemendur og starfsfólk, keppa í hinum ýmsu íþróttagreinum (handbolta, skotbolta, kappáti og fleiru). Að þessu sinni fara nemendur inn í Garðabæ og hefjast leikar kl. 12:30. Viðburðurinn verður auglýstur betur þegar nær dregur en ég vil nota tækifærið og hvetja alla nemendur til að mæta og styðja Flensborg áfram til sigurs!

Föstudaginn 18. október kl. 17:00 verður síðan miðannarmat birt í INNU. Miðannarmat er byggt á því námsmati sem þá þegar hefur farið fram (verkefni og próf) og á að vera góð vísbending um stöðu mála í áföngum. Ég hvet ykkur til að skoða það vel og nota það til hvatningar til að ná enn betri árangri í náminu. Fjarvistayfirlit verður sent út í framhaldinu og ef að leiðrétta þarf óstaðfest veikindi nemenda þá þarf að gera það hið allra fyrsta. Það er gert með því að hafa samband við skrifstofu skólans.

Þá er vetrarfrí skólans framundan, þ.e. dagana 24. - 25. október. Það er von okkar að fríið nýtist öllum vel, ekki síst til að hlaða batteríin og til undirbúnings fyrir lokasprettinn á önninni.