Innritun nýnema

Nú er innritun lokið  hjá okkur í Flensborgarskólanum.  Aðsóknin í skólann var með mesta móti í ár. Alls bárust 368 umsóknir og af þeim voru 187 með skólann í öðru vali. Innritaðir voru 139 nemendur með skólann í fyrsta vali og 41 nemandi með skólann í öðru vali, alls 180 nýnemar.

Því miður er kominn biðlisti nemenda sem vilja komast að. Þeir hafa fengið inni í öðrum skólum og verður það skoðað ef tækifæri gefst til.  Við vonum sannarlega að allir uni vel við sitt og gangi ykkur öllum vel! Áfram Flensborg!