Innritun nýnema fyrir haustönn 2022

Nú er innritun lokið í Flensborgarskólanum. Alls bárust 360 umsóknir og innritaðir voru 160 nýnemar á fyrsta ári. Allir nemendur hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um bekkjarröðun.

Greiðsluseðill fyrir skólagjöldum verður sendur út á næstu dögum ásamt stuttu kynningarbréfi um skólann og fyrstu daga skólahalds í ágúst.

Skólinn er lokaður vegna sumarleyfa starfsmanna en hægt er að senda brýn erindi á flensborg@flensborg.is og þeim verður svarað eins fljótt og auðið er.

Hér má sjá bréf sem skólameistari sendi innrituðum nýnemum nýlega.