Innritun og sumarfrí

Nú er innritun lokið í Flensborgarskólanum. Alls bárust um 400 umsóknir, þar af 352 frá 10. bekkingum. Þetta er töluverð aukning frá því í fyrra og er gaman að segja frá því að þetta er önnur fjölmennasta innritun skólans til síðustu tíu ára. Innritaðir voru 182 nýnemar á fyrsta ári og hafa allir nýnemar við skólann fengið tölvupóst með upplýsingum um bekkjarröðun og fleira. Verið öll hjartanlega velkomin í Flensborg!

Greiðsluseðill fyrir skólagjöldum verður sendur út á næstu dögum ásamt stuttu kynningarbréfi um skólann og fyrstu daga skólahalds í ágúst en kennsla hefst mánudaginn 21. ágúst kl. 08:30, samkvæmt stundatöflu.

Skólinn er nú lokaður vegna sumarleyfa starfsmanna en hægt er að senda brýn erindi á flensborg@flensborg.is og þeim verður svarað eins fljótt og auðið er.

 

Njótið sumarsins!

 

Hér má sjá bréf sem skólameistari sendi verðandi nýnemum við skólann.