Jafnlaunakerfi skólans sannreynt og skólinn fær vottun til ársins 2025

Flensborgarskólinn hefur á ný fengið jafnlaunavottun staðfesta eftir að gerð var úttekt á launakjörum starfsmanna. Vottunarfyrirtækið BSI á Íslandi sá um úttektina en hún felur í sér faglega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á launakjör kynjanna. Meginniðurstöður aðhvarfsgreiningar sýna að konur við Flensborgarskólann eru að meðaltali með 2% hærri laun en karlar bæði þegar kemur að heildarlaunum og grunnlaunum. Niðurstöður þessar staðfesta að Flensborgarskólinn uppfyllir áfram þær kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og sýna fram á að jafnlaunakerfið sé hannað 27 til að ná markmiðum og stefnu skólans í jafnlaunamálum, enda hefur það nú verið sannreynt í fimmta sinn. Þegar horft er til fjölda starfsmanna í nefndum á vegum stofnunarinnar skólaárið 2023 - 2024 þá eru nefndarmenn alls 37, konur eru þar í meirihluta en þátttaka karla er engu að síður góð auk þess sem gætt er að þátttöku allra kynja í nefndarstarfi. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Það er ljóst að ákvarðanir um laun starfsfólks Flensborgarskólans fela ekki í sér kynbundna mismunun.