- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Skólaskjár
- Enska
- Leiðbeiningar
- Spurt og svarað
Flensborgarskólinn hefur á ný fengið jafnlaunavottun staðfesta eftir að gerð var úttekt á launakjörum starfsmanna. Vottunarfyrirtækið BSI á Íslandi sá um úttektina en hún felur í sér faglega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á launakjör kynjanna. Greiningin sýnir laun 69 starfsmanna og er kynjaskiptingin 23% karlar, 77% konur. Meginniðurstöður aðhvarfsgreiningar sýna að mikill stöðugleiki ríkir í grunnlaunum á milli ára en að þessu sinni eru konur með að meðaltali 2,5% hærri grunnlaun en karlar. Konur eru einnig hærri en karlar í heildarlaunum, eða 2% hærri, og er það m.a. vegna vinnumats kennara sem þessar sveiflur á milli ára eiga sér stað. Niðurstöður þessar staðfesta að Flensborgarskólinn uppfyllir áfram þær kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og sýna fram á að jafnlaunakerfið sé hannað til að ná markmiðum og stefnu skólans í jafnlaunamálum, enda hefur það nú verið sannreynt í sjötta sinn. Þegar horft er til starfsmanna í nefndum á vegum stofnunarinnar skólaárið 2023 - 2024 má sjá að konur eru í meirihluta en þátttaka karla er engu að síður góð og í takt við kynjahlutföll starfsfólks.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Það er ljóst að ákvarðanir um laun starfsfólks Flensborgarskólans fela ekki í sér kynbundna mismunun.