Jafnlaunavottun staðfest

Flensborgarskólinn hefur fengið jafnlaunavottun endurnýjaða aftur eftir að gerð var úttekt á launakjörum starfsmanna fyrir júlímánuð 2021. Vottunarfyrirtækið BSI á Íslandi sá um úttektina en hún felur í sér faglega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á kjör karla og kvenna. Niðurstöður vottunar staðfesta að Flensborgarskólinn uppfyllir áfram þær kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og Flensborgarskólinn hefur því sýnt fram á að jafnlaunakerfið er hannað til að ná markmiðum þess og stefnu skólans í jafnlaunamálum, enda hefur það nú verið sannreynt í þriðja sinn. Útskýrður kynbundinn launamunur samkvæmt launagreiningu er 2,2% konum í hag í grunnlaunum. Munurinn var örlítið minni, konum í hag, þegar kom að föstum launum starfsmanna eða 1,2%. Þegar horft er tilbaka til ársins 2020 þá er launamunur stofnunarinnar ennþá konum í hag en þó hefur dregist saman með kynjunum.

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Það er ljóst að ákvarðanir um laun starfsfólks Flensborgarskólans fela ekki í sér kynbundna mismunun.