Jafnlaunavottun staðfest

Flensborgarskólinn hefur á ný fengið jafnlaunavottun staðfesta til ársins 2025 eftir að gerð var úttekt á launakjörum starfsmanna. Vottunarfyrirtækið BSI á Íslandi sá um úttektina en hún felur í sér faglega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á launakjör kynjanna.

Meginniðurstöður aðhvarfsgreiningar sýna að karlar við Flensborgarskólann eru að meðaltali með 2,1% lægri laun en konur bæði í grunn- og heildarlaunum. Mikill stöðugleiki er í grunnlaunum á milli ára en heildarlaun sveiflast til vegna yfirvinnu kennara samkvæmt vinnumati. Niðurstöður þessar staðfesta að Flensborgarskólinn uppfyllir áfram þær kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og sýna fram á að jafnlaunakerfið sé hannað til að ná markmiðum og stefnu skólans í jafnlaunamálum, enda hefur það nú verið sannreynt í fimmta sinn. Þegar horft er til fjölda starfsmanna í nefndum á vegum stofnunarinnar skólaárið 2022 - 2023 þá eru nefndarmenn alls 37, konur eru þar í meirihluta en þátttaka karla er engu að síður góð en um 60% karla sem starfa við skólann eru virkir í nefndarstarfi.

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Það er ljóst að ákvarðanir um laun starfsfólks Flensborgarskólans fela ekki í sér kynbundna mismunun.