Ljóðasamkeppni bókasafns Hafnarfjarðar

Bókasafn Hafnarfjarðar hélt á dögunum ljóðasamkeppni undir yfirskriftinni Rísandi úlfur - hjarta. Ljóðum mátti skila í hverjum þeim miðli sem höfundur kaus og voru verðlaun veitt í tveimur flokkum; framhaldsskólanemar og 8. -10. bekkur.

Gaman er að segja frá því að nemandi okkar, Ninja Sól Róbertsdóttir, var hlutskörpust en hún er nemandi okkar á 2. námsári sínu.