Lokasprettur í námi, skráning í mat, könnun fyrir nýnema í INNu og fleira

Það styttist í að kennslu ljúki með tilheyrandi lokanámsmati Þá er mikilvægt að halda vel utan um námið, sinna verkefnaskilum og prófum og mæta vel í kennslustundir.

Helga og Sunna, námsráðgjafar, verða með stutt námskeið um próftöku, skipulag og prófkvíða mánudaginn 28. nóvember kl. 11:55 í stofu H102. Skráning á sunna@flensborg.is eða helga@flensborg.is

Þann 1. desember er svokallaður námsmatsdagur. Sá dagur nýtist nemendum fyrir verkefnaskil og undirbúning fyrir lokapróf.

Skráning í hádegismat fyrir nemendur er hafin á. Þetta gerum við til að tryggja gæði matar hverju sinni og koma í veg fyrir matarsóun. Nemendur geta farið inn á heimasíðu skólans, valið þar Matarskráning nemenda, skráð sig inn á Office aðgangi og valið mat á þeim dögum sem þeir kjósa.

 

Hér má sjá bréf sem skólameistari sendi nemendum og forráðamönnum fyrr í dag.