Námsversdagur og próftími framundan

Þá fer að líða undir lok annar en í dag er síðasti hefðbundni kennsludagurinn. Þetta þýðir að við skiptum um gír í skólastarfinu því að á mánudaginn er svokallaður námsversdagur. Þá geta nemendur komið í skólann á milli 08:30 – 11:50, hitt kennarana sína og fengið leiðsögn í verkefnavinnu eða aðstoð við prófundirbúning. Kennarana er að finna í ákveðnum stofum á ákveðnum tímum og lista yfir þá má sjá hér: 

Stofulisti kennara

Það er mikilvægt að nemendur mæti stundvíslega í próf. Einnig að þeir komi með skilríki í lokapróf. Prófstaður (stofunúmer) er auglýstur samdægurs á töflu í anddyri skólans. Athugið að öll notkun snjalltækja (síma og úra) er stranglega bönnuð.

Lokað verður fyrir allar einkunnir í INNU á próftíma en gert er ráð fyrir að einkunnir verði birtar þann 22. maí.

Nemendur eru hvattir til að kynna sér prófreglur sem finna má hér.